Rafkerfi gripahúsa

Skoðun, rafgæðamælingar og fyrirbyggjandi viðhald

Nútímafjós er flókið kerfi þar sem rafbúnaður og sjálfvirkni þurfa að vinna saman allan sólarhringinn. Við skoðum rafkerfið í heild, mælum rafgæði og jarðbindingar, hitamyndum búnað og förum yfir helstu snertifleti gripa.

FLÖKKUSTRAUMUR Jarðskaut VFD

Verksmiðjur bíða ekki eftir bilunum. Þar er búnaður merktur upp, skoðaður reglulega og viðhaldi fylgt eftir.

Bú hafa tæknivæðst hratt, en viðhaldið hefur ekki alltaf þróast með sama hraða.

Þar komum við inn.

Fyrsta skoðun

Allir byrja á fyrstu skoðun

Við komum á bæinn og förum yfir rafmagnstöflur, lagnir, tengingar, mótora, jarðbindingar og annan lykilbúnað. Við mælum rafgæði, hitamyndum búnað og gerum grunnmælingar á helstu snertiflötum gripa. Búnaður er merktur og skráður eftir þörfum og niðurstöðum skilað í skýrslu með myndum og forgangsröðuðum ráðleggingum.

Rafgæðamælingar

Við mælum spennugæði, yfirsveiflur (harmonics), jarðskautsviðnám og skrefspennu á staðnum til að meta ástand kerfisins.

Jarðbindingar og spennujöfnun

Við förum yfir aðgengilegar jarðbindingar og spennujöfnun innan umsamins umfangs, metum frágang og bendum á mögulegar úrbætur.

Snertifletir gripa

Grunnmælingar á helstu snertipunktum gripa við járn og búnað: drykkjarker, grindur, mjaltabás, fóðurgang og ristar.

Hitamyndataka búnaðar

Við hitamyndum mótora, tengingar og töflur. Óeðlileg hitamyndun getur bent til frávika sem þarf að skoða nánar.

Tíðnitruflanir og EMC

Athugun á truflunum frá tíðnibreytum (VFD) og öðrum búnaði sem geta haft áhrif á rekstur og líftíma búnaðar, með ráðleggingum um síun og skermun.

Uppmerking, skráning og skýrsla

Við merkjum og skráum búnaðinn og setjum niðurstöður og myndir í eina skýrslu með forgangsröðuðum ráðleggingum sem rafverktaki getur unnið eftir.

Innifalið í fyrstu skoðun

Það sem alltaf fylgir grunnskoðuninni.
  • Grunnmælingar á helstu snertiflötum gripa
  • Athugun á jarðbindingum og spennujöfnun
  • Skimun eftir vísbendingum um flökkustrauma
  • Rafgæðamælingar og hitamyndataka búnaðar

Viðbótarþjónusta þegar tilefni er til

Ef mælingar eða aðstæður gefa ástæðu til.
  • Ítarleg flökkustraumagreining
  • Fleiri mælipunktar
  • Langtímamælingar
  • Greining tengd hegðun gripa, tæringu eða ákveðnum búnaði
Niðurstaðan

Þú færð að vita

Í lagiHvað er í góðu lagi og þarf ekkert aðhafst.
Fylgjast meðHvað þarf að fylgjast með milli skoðana.
LagaHvað þarf að laga og hvers vegna.
ForgangurHvað ætti að gera fyrst.
StaðsetningHvar búnaðurinn er og hvaða mælingar tilheyra honum.
Hlutverk okkar

Óháðar mælingar og ráðgjöf

Smáfiskar framkvæma mælingar og greiningar og veita ráðgjöf, en taka ekki að sér rafverkin sjálf. Nauðsynlegar breytingar og viðgerðir eru framkvæmdar af löggiltum rafverktaka sem þú velur. Ráðgjöfin er veitt af löggiltum rafvirkjameistara.

Þetta gerum við

  • Komum á staðinn og skoðum rafkerfið, mælum rafgæði, jarðbindingar, hitastig og snertifleti gripa
  • Merkjum og skráum búnaðinn og setjum niðurstöður í skýrt viðhaldsyfirlit
  • Bendum á hvað þarf að skoða eða laga og hvað er þegar í góðu lagi
  • Forgangsröðum ráðleggingunum: hvað fyrst, hvað næst og hvað má bíða
  • Getum útbúið tilboðsgrunn og fylgt úrbótum eftir gagnvart rafverktaka

Þetta gerum við ekki

  • Smáfiskar starfa ekki sem löggiltur rafverktaki og taka ekki að sér framkvæmd rafverka
  • Við breytum hvorki raflögnum né tengjum búnað, slík verk eru unnin af löggiltum rafverktaka
  • Við seljum ekki búnað eða viðgerðir sem hluta af skoðuninni

Þar sem við tökum ekki að okkur framkvæmdina eru ráðleggingarnar óháðar sölu á búnaði og viðgerðum.

Þjónustuleiðir

Veldu hversu mikið við sjáum um

Allir byrja á fyrstu skoðun. Að henni lokinni velur þú hvort þú vilt sjá sjálfur um framhaldið eða láta okkur halda utan um það með þér. Að fyrstu skoðun lokinni færðu fast verðtilboð, eina heildartölu fyrir umsamið umfang.

15% afsláttur af fyrstu skoðun ef þú velur árlegt eftirlit eða heildarumsjón að skoðun lokinni. Afslátturinn dregst frá reikningi fyrstu skoðunar.
Skoðun
Fyrir þig sem vilt skýra mynd af stöðunni og sérð sjálfur um framhaldið.
Fast tilboð í fyrstu skoðun
Sjálfstæð þjónusta, engin áskrift
  • Skoðun og rafgæðamælingar
  • Hitamyndataka
  • Grunnmælingar á snertiflötum gripa
  • Uppmerking og skráning búnaðar
  • Forgangsröðuð skýrsla sem rafverktaki getur unnið eftir
Óska eftir samtali
Heildarumsjón
Fyrir þig sem vilt að við höldum utan um framhaldið.
Fast árgjald eftir fyrstu skoðun
Greitt í tólf jöfnum mánaðargreiðslum
  • Allt sem fylgir Árlegu eftirliti
  • Tilboðsgrunnur fyrir nauðsynlegar úrbætur
  • Samskipti við rafverktaka fyrir þína hönd
  • Eftirfylgni með framkvæmdum
  • Yfirlit yfir hvað er klárað og hvað er eftir
  • Mat á því hvort ástæða sé til frekari mælinga eða heimsóknar
Óska eftir samtali

Fyrsta skoðun er sjálfstæð þjónusta. Að henni lokinni getur þú valið árlegt eftirlit eða heildarumsjón með föstu verði fyrir umsamið umfang. Viðbótarvinna er aldrei unnin nema með samþykki þínu.

Þjónustusamningurinn

Svona virkar árlega eftirlitið

Fyrsta skoðunin er sjálfstæð þjónusta. Að henni lokinni færðu fast tilboð í árlegt eftirlit sem miðast við stærð búsins, fjölda mælipunkta og það þjónustustig sem þú velur. Árgjaldinu er svo dreift jafnt á tólf mánuði.

1

Fyrsta skoðun

Við komum á staðinn, framkvæmum fyrstu skoðun og metum stærð hússins, fjölda mælipunkta og umfang vinnunnar. Fyrsta skoðun er greidd sérstaklega.

2

Fast tilboð í eftirlit

Að skoðun lokinni færðu fast tilboð í árlegt eftirlit. Verðið miðast við raunverulegt umfang búsins og það þjónustustig sem þú velur.

3

Árgjaldinu dreift yfir árið

Fast árgjald er greitt með tólf jöfnum mánaðargreiðslum. Samningurinn innifelur eina umsamda skoðun á hverju tólf mánaða tímabili.

4

Skoðun, skýrsla og eftirfylgni

Við höfum samband þegar líður að næstu skoðun, ákveðum tíma í samráði við þig og skilum niðurstöðum í skýrslu. Þjónustustigið ræður hversu langt við fylgjum úrbótunum eftir.

Heildarumsjón: þú sinnir búinu, við fylgjum úrbótunum eftir

Í Heildarumsjón höldum við utan um samskipti við rafverktakann eftir skoðunina. Við skráum hvaða verk eru kláruð, hvað er enn eftir og hvort ástæða sé til að fá rafverktakann aftur.

Þetta er valkosturinn fyrir bónda sem vill láta okkur halda utan um eftirlitið, eftirfylgnina og samskiptin þannig að úrbæturnar verði ekki enn eitt verkefnið á borði bóndans.

Hvaða verk rafverktakinn er búinn að klára

Hvaða verk eru enn eftir

Hvort ástæða sé að fá rafverktakann aftur og hvenær

Samskipti við rafverktakann fyrir þína hönd

Aðferðafræði

Frávik týnast ekki

Við styðjumst við hugtakanotkun og viðhaldsferla evrópsku staðlanna EN 13306 og EN 17007. Markmiðið er einfalt: að frávik týnist ekki.

Hvert tæki fær sitt auðkenni

Í fyrstu skoðun merkjum við búnaðinn með QR-miða: töflur, dælur, mótora, fóðurkerfi og lýsingu. Allar jarðbindingar fá númer, og allir mælipunktar líka, svo hægt sé að mæla aftur á nákvæmlega sama stað ári síðar. Miðinn ber aðeins númer. Tegund, staðsetning og staða búa í kerfinu, þar sem þau mega breytast án þess að miðinn verði úreltur.

Þegar frávik kemur upp er QR-miðinn skannaður á staðnum. Síminn opnar réttu eininguna og frávikið er skráð þar sem það fannst, með mynd. Enginn þarf að muna hvaða mótor það var eða hvar hann er.

Sami miði virkar fyrir alla sem koma að búnaðinum: þú sérð stöðu og sögu tækisins, rafverktakinn fær staðsetningu og myndir, og við sjáum hvað er ólokið.

031
Smáfiskar

Dæmi um miða. Talan er fyrir mannsaugað, QR-kóðinn ber slóðina á eininguna. Skannaðu hann eða smelltu á miðann til að sjá sýnishorn af því sem bóndinn sér.

01

Skráð

Frávikið er skráð á tiltekna einingu með mynd og staðsetningu, hvort sem það kemur í ljós í skoðun eða er tilkynnt frá búinu.

02

Metið

Við metum hversu alvarlegt það er, hvað þarf að laga strax og hvað þolir bið fram að næstu skoðun.

03

Sett í úrbót

Verkið fer á verkefnalista með forgangi og þaðan til rafverktakans, með nákvæmri staðsetningu og myndum.

04

Skjalfest

Rafverktakinn skilar mynd og lýsingu á því sem var gert. Myndin og lýsingin geymast með einingunni, ekki í lausum tölvupósti.

05

Staðfest

Við staðfestum að úrbótin hafi farið fram áður en málinu er lokað. Ekkert lokast sjálfkrafa.

Reglulegar úttektir á einum stað

Kerfið heldur líka utan um allt sem þarf að taka út reglulega á rafkerfinu og í kringum það:

BrunakerfiNeyðarlýsingSlökkvitækiKælitankurAnnað sem á sér gjalddaga

Þú sérð hvað var gert síðast, hver sá um það og hvenær næsta úttekt á að fara fram, allt á sama stað og búnaðurinn sjálfur.

Í Heildarumsjón sjáum við um að þetta sé skráð, að úttektirnar séu gerðar á réttum tíma og að úrbætur sem koma út úr þeim fari í sama ferli og allt annað, þar til þeim er lokið.

Þannig verður viðhaldið að samfelldu ferli, frá fyrstu skoðun eða tilkynningu og þar til málinu er raunverulega lokið. Sagan fylgir hverri einingu áfram, svo næsta skoðun byrjar ekki á núlli.

Mælaborð

Allt á einum stað

Árlegu eftirliti og heildarumsjón fylgir aðgangur að mælaborði þar sem skýrslur, verkefnalisti og staða úrbóta eru samankomin. Í Heildarumsjón heldur mælaborðið einnig utan um samskiptin við rafverktakann og framvindu verkanna.

  • Allar skýrslur á einum stað: skoðanir, hitamyndir og verktakaskýrslur
  • Verkefnalisti: hvað er búið og hvað er eftir
  • Samskipti og eftirfylgni við rafverktaka í Heildarumsjón
  • Samanburður á rafgæðamælingum milli skoðana
Skoða sýnishorn af mælaborði
Fyrsta samtalið er ókeypis

Byrjum á stuttu samtali

Við förum yfir húsið, búnaðinn og hvort einhver sérstök vandamál hafi komið upp. Að því loknu færðu tilboð í fyrstu skoðun. Engin skuldbinding.

  • Ókeypis fyrsta samtal
  • Svar innan sólarhrings á virkum dögum
  • Fast verð, ein heildartala fyrir umsamið umfang
  • Skoðun á staðnum um allt land
info@smafiskar.is

Fylltu út formið eða sendu okkur línu. Við höfum samband.

Við hringjum í þig

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að hringja í þig. Persónuvernd

Takk fyrir!

Við hringjum í þig innan sólarhrings á virkum dögum.