Óháð ráðgjöf í rafmagni

Við leitum skipulega að veikleikum
áður en þeir verða að vandamáli

Ráðgjöf, mælingar og skoðun á rafkerfum.
Skilum skýrri stöðu og tillögum að úrbótum.

Aðalþjónusta · landbúnaður

Gripahús og búrekstur

Nútímafjós er flókið vinnslukerfi. Við skoðum rafkerfið í heild, greinum veikleika og skilum skýrum tillögum að úrbótum. Flökkustraumar og rafgæði eru okkar sérgrein.

  • Skoðun og rafgæðamælingar
  • Flökkustraumar
  • Jarðbindingar og spennujöfnun
  • Hitamyndataka búnaðar
  • Uppmerking og viðhaldskerfi
  • Árlegt eftirlit og eftirfylgni
Sjá þjónustuna fyrir gripahús
VFD FLÖKKUSTRAUMUR
Skoðun · rafgæði · viðhaldskerfi
Iðnaður og sjálfvirkni

Þegar rafkerfi og sjálfvirkni passa ekki saman

Nútíma iðnaður byggir á því að rafkerfi, sjálfvirkni og endalínur vinni vel saman. Við skoðum kerfin í heild, greinum það sem getur valdið töfum, truflunum eða óstöðugum rekstri og skilum skýrum tillögum að úrbótum.

  • Bestun endabúnaðar
  • PLC- og þjarkaforritun
  • Greining á flöskuhálsum
  • Samskipti við framleiðendur
  • Rafgæði og EMC
  • Álags- og straumstýring
Skoða endabúnað og bestun
SJÁLFVIRK ENDALÍNA
Bestun · sjálfvirkni · straumstýring
Fleira sem við gerum

Fræðsla og sérlausnir

Sérverkefni sem byggja á sömu þekkingu en tala til afmarkaðri hópa.

Um Smáfiska

Friðrik Óli Atlason

Að baki Smáfiskum stendur Friðrik Óli Atlason, löggiltur rafvirkjameistari og kennari í rafvirkjun við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Friðrik hefur yfir 15 ára reynslu af rafmagni, iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði og sjálfvirknibúnaði. Í þróunarvinnu nýtir hann gervigreind og önnur stafræn verkfæri til greiningar, skráningar og úrvinnslu gagna.

Með Smáfiskum sinnir hann óháðum skoðunum, mælingum og ráðgjöf á rafkerfum. Áherslan er á að greina stöðuna skýrt, finna það sem þarfnast athugunar og hjálpa eigendum að forgangsraða næstu skrefum.

Flest vandamál eiga sér skýringu.

Þau sem sitja eftir eru oft þau sem enginn hefur haft tíma til að rekja til enda.

Það er vinnan sem við tökum að okkur.

Fyrsta samtalið er ókeypis

Byrjum á stuttu samtali

Skildu eftir nafn og símanúmer. Við hringjum, förum yfir stöðuna og þú ákveður svo framhaldið. Engin skuldbinding.

  • Ókeypis fyrsta samtal
  • Pantaðu símtal eða sendu tölvupóst
  • Óháð ráðgjöf, engin sala á búnaði

Viltu frekar senda tölvupóst?

info@smafiskar.is

Við hringjum í þig

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að hringja í þig. Persónuvernd

Takk fyrir!

Við munum hringja í þig fljótlega.