← Til baka
Þetta er sýnishorn — raunveruleg handbók er sérsniðin að þínum vinnustað, verkefnum og búnaði.
Handbók Smáfiska · Útgáfa 1

Handbók fyrir tilsjónarmenn

og nema á samning

Hér er farið yfir helstu atriði sem nemi þarf að öðlast færni í ásamt þjálfunaráætlun nemans. Handbókin tengist við gátlista í Gæðahandbókinni og ferilbók nema.

Nafn fyrirtækis
Nafn meistara
Nafn nema
Allt að 48 vikur

Efnisyfirlit

4a. Kynning á fyrirtæki og ferilbók · 4b. Raflagnir í íbúð (8–12 vikur) · 4c. Nýlagnir í iðnaðarhúsnæði (4–8 vikur) · 4d. Smíði aðaltöflu (2 vikur) · 4e. Mótorar og tíðnibreytarar (1 vika) · 4f. Bilanagreining · 4g. Brunaviðvörunarkerfi (1 vika) · 4h. Öryggis- og aðgangskerfi (2 vikur)
Mat á nema — upphafsstöðu
Fyrsti dagur

Áður en verknám hefst er mikilvægt að greina stöðu nema. Tilsjónarmaður og nemi fylla saman út sjálfsmatsgátlista á kvarðanum 1–5 þar sem 1 er lítil/engin kunnátta og 5 er mikil kunnátta. Ef hæfnisskor er hátt er hægt að aðlaga áætlunina og veita ábyrgð fyrr.

Hæfniþáttur
Skor 1–5
TeikningalesturEinlínumyndir, ÍST 150 tákn, rafmagnsteikningar
12345
MælitækniAVO mælir, einangrunarmæling, spennuprófari
12345
Röralagnir og strenglögnLögn í steypu/vegg, rör, barkar, kaplar
12345
TengingarInnstungur, rofa, ljós, töflur, smáspennu
12345
BilanagreiningKerfisbundin leit, LOTO, mælingar
12345
ÖryggismenningPersónuhlífar, áhættumat, fimm öryggisreglur
12345
Stýringar og forritunPLC, tíðnibreytarar, stjörnu/þríhyrningstengingar
12345
Dags: ___/___/______
Dags: ___/___/______
Þjálfunarferli nemans
Yfirlit

Nemi fer í gegnum verkþætti í þessari röð. Öll þjálfun fer fram með tilsjónarmanni — verk eru endurtekin minnst tvisvar, þar sem nemi ber ábyrgð í seinna skiptið.

Móttaka nema
Viðhald og nýlagnir
Smáspennukerfi
Stýribúnaður
Bilanagreining
1. Kynning á fyrirtæki og ferilbók
Fyrsti dagur

Markmið: Nýnemi kynnist rekstri fyrirtækisins, öryggismálum, starfsfólki, starfsemi stéttarfélaga og ábyrgð starfsmanna.

  • Trúnaðarmaður kynnir sigKjarasamningur, almenn réttindi, stéttarfélög.
    GÁT 1.1
  • ÖryggistrúnaðarmaðurHelstu öryggismál í fyrirtækinu, persónuhlífar, neyðaráætlun.
    GÁT 1.1
  • Tilsjónarmaður fer yfir verkfæralistaHvað nemi þarf að eiga, ferð í heildsölu, kynning á verkstæði.
  • Áhættumat kynntHvernig það er framkvæmt og mikilvægi þess í vinnu rafvirkja.
  • Tímaskráning og efnisnotkunKynning á Harvest, hvernig skal tilkynna veikindi og skrá frí.
2. Þjálfunaráætlun — Raflagnir í íbúð
8–12 vikur

Markmið: Víðtæk þjálfun í uppsetningu raflagna, með áherslu á öryggisatriði, tæknilega framkvæmd og reglufylgni. Nær yfir kafla 2–8, 10 og 12 í ferilbók.

Áhættumat og undirbúningur Daglega

  • Dagleg framkvæmd áhættumats áður en vinnu er hafið
  • Nemi tryggir efni til staðar, rétt magn
  • Lesið í teikningar, samskipti við tengilið verktaka

Lögn í steypta plötu og innveggi 2 vikur

  • Röralagnir í plötu og vegg — festa vel, beygjur góðar
  • Uppsetning á keilum, mælt fyrir og gengið frá
  • Barkar settir í veggi, mikilvægi á góðum festingum
  • Uppsetning dósa — frágangur, festingar, láréttar

Ídráttur víra og netstrengja 1 vika

  • Val á vírum eftir straumþörf og lengd lagna, rýna teikningar
  • Draga víra og kapla í rör, ganga frá fyrir málun

Uppsetning og tenging í töflu 2 dagar

  • Þjálfun í uppsetningu og tengingum í töflu — eftir GÁT 2.1
  • Tengingar á smáspennu, patchpanel og tengli inn í hólfi

Rofa, tengla og ljós 1 vika

  • Uppsetning rofa og tengla samkvæmt öryggiskröfum
  • Frágangur smáspennutengla
  • Frágangur fyrir úttekt — loka öllum dósum, prófa tengla

Lokaprófanir og úttekt 1 dagur

  • Framkvæmd lokaprófana — mælingar, úttektir
  • Skýrslur og gagnaöflun fyrir úttektarmælingar

Dagleg skráning Allan verktíma

  • Dagleg myndataka og skráning á framvindu
  • Fylla út GÁT 2.2.1 daglega
  • Fylla út tímaskrá í tímaskráningarkerfi
3. Þjálfunaráætlun — Mótorar, skilrofar og tíðnibreytarar
1 vika

Markmið: Framkvæma öruggar tengingar á mótorum — áhættumat, Dahlander, snúningsáttaskipti og tíðnibreytarar. LOTO-kerfið (Læsa–Merkja–Prófa) er undirstaðan.

Verkþættir

  • Áhættumat: Læsa — Merkja — Prófa. Tryggja straumleysi
  • Kynning á mótorum: Dahlander, samfasa, stjörnu/þríhyrningstengingar
  • Uppsetning: Leggja kapla, tengja við mótora, áhersla á öruggar tengingar
  • Forritun: Tenging við PLC og tíðnibreyta, stilling
  • Mælingar: Einangrunar- og viðnámsmælingar (AVO og Megger)
4. Bilanagreining og viðgerð
Þegar bilun kemur upp

Þessi verkþáttur gerist þegar eitthvað bilar. Ef ekkert slíkt verkefni er fyrir hendi þarf að búa til verkefni sem tekur á þáttum GÁT 2.3. Tekur á ferilbókarþáttum 2, 3 og 12.

Verkþættir

  • Öryggisfræðsla: Áhættumat, tryggja spennu-leysi á bilaðri búnaði
  • Mælitæki: AVO mælir, straummælir, spennuprófari — nákvæmar mælingar
  • Bilanagreining: Kerfisbundin nálgun — þrengja niður, ákvarða orsök
  • Raunveruleg verkefni: Vinna á raunverulegum kerfum undir eftirliti
  • Skýrslugerð: Ítarlegar skýrslur, tillögur að úrbótum
5. Smáspennukerfi — brunaviðvörun og aðgangsstýring
1–2 vikur

Markmið: Nemi skilji kröfur um brunaviðvörunar- og aðgangskerfi, geti sett upp, tengt og prófað slík kerfi.

  • Kynning og öryggisfræðslaYfirlit yfir skynjarar, stýrikerfi, persónuhlífar.
  • Búnaður valinn og settur uppViðeigandi búnaður fyrir aðstæður, kaplar lagðir.
  • Tengingar og samþættingTengja við önnur kerfi byggingar, stilla viðbrögð.
  • Lokaprófun og afhendingStaðfesta virkni, samskipti við notanda kerfis.
Lykilhæfni — ferilbókarþættir
Yfirlit

Tilsjónarmaður merkir við þegar nemi hefur náð hæfni. Þetta samsvarar köflum ferilbókar — kafli 2 til 12.

  • 2. ÖryggismálÁhættumat, LOTO, persónuhlífar, fimm reglur.
    Kafli 2
  • 3. HreyflarMótortegundir, tengingar, tíðnibreytarar.
    Kafli 3
  • 4–6. Ídráttur, ljósabúnaður, rör og dósirRöralagnir, kaplar, dósir, frágangur.
    Kafli 4–6
  • 7. RafskáparSmíði, uppsetning, tengingar í töflu.
    Kafli 7
  • 8. TeikningarLesa og skilja ÍST 150 teikningar og tæknigögn.
    Kafli 8
  • 9. SmáspennaBrunaviðvörun, öryggiskerfi, netkerfi.
    Kafli 9
  • 10. StrenglagnirVal, lögn, festingar, brunaþéttingar.
    Kafli 10
  • 11. StýringarPLC, forritun, stýritöflur.
    Kafli 11
  • 12. ÚttektirLokaprófanir, mælingar, skýrslugerð.
    Kafli 12
Dags: ___/___/______
Dags: ___/___/______

Viltu handbók sérsniðna að þínum vinnustað?

Þjálfunaráætlanir, gátlistar og hæfnismat sniðið að þínum búnaði, verkefnum og fyrirtæki. Sparar tíma tilsjónarmanns og tryggir gæði þjálfunar.

Hafa samband