Sérsmíðuð stýring

Pottastýring — snjöll og örugg

Fullkomin hitastýring fyrir heitapotta. Skjár, stýrivél, tveir hitanemarar, sjálfvirk öryggismörk og samhæfni við öll helstu snjallheimiliskerfi. Hannað og smíðað á Akureyri.

Heitur Pottur Stillingar TILBÚINN — 39.5°C 39.5 °C Heitt Á Kalt Á M1 M2 valfrjálst 42.1°C Inntak ML Frárennsli ⚠ Hámark: 45°C FULLORÐNIR39.5° BÖRN37.0° SÉRSNIÐIÐ__._° NÆTUR4klst YTRI MERKI 04.04.26 18:42
Pottastýringin gerir heitapottinn úr lúxusvöru í daglegt verkfæri — í stað eins fasts hitastigs gefur hún þér valmöguleika á að stilla pottinn eftir þínum þörfum, fyrir alla fjölskylduna, án vandkvæða.
Forstillingar

Þrjár stillingar — ein snerting

Veldu á skjánum og stýringin sér um restina. Öll gildi eru stillanleg — hitastig, Heitt Á/Af, Kalt Á/Af og hámark innrennslis.

39.5°C
Fullorðnir
Hefðbundin pottahiti
37.0°C
Börn
Örugg hiti fyrir yngri notendur
?°C
Sérsniðið
Þú ákveður hitastigið
Grunnvirkni

Fylgir alltaf með

Þetta er kjarninn í pottastýringunni — allt sem þarf til að stjórna pottinum á öruggan og snjallegan hátt.

Tveir hitanemarar

Einn í pottinum, annar í innrennsli. Stýringin mælir hvort tveggja og bregst við sjálfkrafa.

Öryggismörk 45°C

Innrennslisneminn lokar sjálfkrafa ef hiti fer yfir stillanlegt hámark (allt að 45°C). Verndar gegn bruna.

Mótor-/segulloki á innrennsli

Stýrir opnun og lokun á innrennsli sjálfkrafa. Mótorloki eða segulloki — eftir kerfi.

Mótorloki á frárennsli

Opnar í stilltan tíma til að tæma pottinn. Stýringin sér um tímasetningu sjálfkrafa.

Sjálfskoðun á hitanema

Kerfið athugar sjálfkrafa hvort innrennslisneminn sé línulegur og gefur viðvörun ef hann er ekki í lagi.

Rofar úti/inni

Kveikja og slökkva á pottinum með rofum — inni í húsi og/eða úti við pottinn.

Snjallkerfi — inn og út

Tengist Shelly, Plejd eða öðru kerfi. Kveikja á potti úr fjarska. Stýringin sendir „tilbúinn" merki til baka.

Næturkeyrsla (af/á)

Pottur kaldari á nóttunni en fær innspýtingu á 4 tíma fresti til að hreyfa vatnið. Hægt að slökkva á ef óskað.

Valfrjálst Auka virkni

Hægt að bæta við

Þetta eru viðbætur sem hægt er að panta ef þú vilt meiri möguleika — ekkert af þessu er nauðsynlegt fyrir grunnvirkni.

Kalt vatn fyrst

Potturinn fær ~250L af köldu vatni fyrst, svo blandað vatn — tryggir ~38° við fyrstu keyrslu og verndar pottinn.

Tvö blöndunartæki

Eitt kaldara, annað heitara — fínstilling á innrennsli. T.d. meira kalt þegar börn nota pottinn.

Útihitanemi

Mælir útihita og stýrir hitakapla í lögnum sjálfkrafa — tryggir að lagnir frysti ekki.

Hitakaplar í þakrennu

Stýringin sér um hitakapla í þakrenna á sama útihitanema — allt á einum stað.

Sólúr á pallaljós

Pallaljós kveikna sjálfkrafa við sólsetur og slökkna við sólris. Einnig hægt að nota on/off takka.

Pottur tilbúinn ljós

Kveikir á ljósum í pottinum þegar hitastig næst — sýnilegt merki um að potturinn bíður. On/off virkni.

Gott að vita

Teikningar og tengimynd fylgir öllum stýringum. Við sköffum ekki pípulagningarefni — blöndunartæki, lokar og lagnir eru á ábyrgð pípulagningamanns. Við sjáum um rafmagnið og stýringuna.

Tengist öllu

Virkar með kerfinu sem þú átt

Áhugasamur?

Fáðu tilboð í pottastýringu

Hvert kerfi er smíðað eftir þörfum — segðu okkur frá pottinum þínum og við komum með tillögu og verð.

Senda fyrirspurn ← Til baka á forsíðu