Persónuvernd

Persónuverndarstefna Smáfiska

Útgáfa 1.0 Gildir frá: 9. ágúst 2026

Smáfiskar safna og vinna ýmsar upplýsingar til að geta sinnt rafgæðaúttektum, ráðgjöf, eftirfylgni, mælaborði og árlegum þjónustusamningum. Við förum varlega með gögnin, seljum þau ekki og deilum þeim ekki nema það sé nauðsynlegt fyrir þjónustuna, samþykkt af viðskiptavini eða skylt samkvæmt lögum.

Í stuttu máli: Gögn um bú, skýrslur, myndir, mælingar og samskipti eru trúnaðarmál. Við notum þau til að veita þjónustuna og halda utan um úrbætur, ekki til að deila þeim að óþörfu.
Aftur á gripahúsasíðu

Efnisyfirlit

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er:

Friðrik Óli Atlason
Kennitala: 080184-2989
Lögheimili: Dvergagil 28, 603 Akureyri
Netfang: info@smafiskar.is

Í þessari stefnu er ábyrgðaraðilinn nefndur „Smáfiskar“.

2. Hvaða upplýsingum er safnað

Við söfnum þeim upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita rafgæðaúttektir, ráðgjöf, eftirfylgni og árlega þjónustusamninga.

Við reynum að safna ekki meiri upplýsingum en þarf hverju sinni.

3. Tilgangur vinnslu

Persónuupplýsingar eru unnar til að:

4. Lagagrundvöllur vinnslu

Vinnslan byggist eftir atvikum á:

5. Deiling upplýsinga

Meginreglan er einföld: Við seljum ekki persónuupplýsingar og deilum þeim ekki að óþörfu.

Smáfiskar deila persónuupplýsingum ekki með þriðja aðila nema:

Við deilum ekki skýrslum, myndum, mæligögnum eða upplýsingum um bú með öðrum í markaðslegum tilgangi.

6. Mælaborð og verkefnayfirsýn

Ef viðskiptavinur fær aðgang að mælaborði getur þar verið haldið utan um skýrslur, verkefni, stöðu úrbóta, samskipti og gögn fyrri ára.

Mælaborðið er ætlað viðskiptavini og Smáfiskum. Aðgangur annarra, svo sem rafverktaka, er aðeins veittur ef það er hluti af þjónustunni eða samþykkt sérstaklega.

Við munum hanna aðgangsstýringar þannig að aðeins þeir sem þurfa á upplýsingunum að halda hafi aðgang að þeim.

7. Samskipti við rafverktaka

Velji viðskiptavinur eftirfylgni eða heildarumsjón getur Smáfiskum verið falið að hafa samskipti við rafverktaka fyrir hönd viðskiptavinar.

Í slíkum tilvikum má miðla nauðsynlegum skýrslum, myndum, mæligögnum, verkefnalýsingum og upplýsingum um úrbætur til þess rafverktaka sem viðskiptavinur tilgreinir.

Viðskiptavinur getur afturkallað slíka heimild skriflega. Afturköllun getur þó haft áhrif á möguleika Smáfiska til að veita umsamda eftirfylgni.

8. Varðveisla gagna

Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er vegna þjónustunnar, samningssambands, bókhaldsskyldu, réttinda eða mögulegra ágreiningsmála.

Ópersónugreinanleg og órekjanleg gögn má varðveita lengur til gæðamála, tölfræði, rannsókna og þróunar þjónustunnar.

9. Öryggi upplýsinga

Smáfiskar leggja áherslu á að vernda upplýsingar viðskiptavina með eðlilegum tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum.

Engin rafræn varðveisla er þó fullkomlega áhættulaus og því er mikilvægt að viðskiptavinur gæti einnig að eigin aðgangi, lykilorðum og tölvubúnaði.

10. Réttindi einstaklinga

Einstaklingar eiga eftir atvikum rétt á að:

Beiðnir má senda á info@smafiskar.is. Við kunnum að þurfa að staðfesta auðkenni áður en beiðni er afgreidd.

11. Vafrakökur og tæknileg gögn

Vefur Smáfiska kann að nota nauðsynlegar tæknilegar vafrakökur til að vefurinn virki rétt.

Ef síðar verða notaðar greiningar-, markaðs- eða aðrar ónauðsynlegar vafrakökur verður veitt nánari fræðsla og aflað samþykkis þar sem þess er krafist.

12. Fyrirspurnir og kvartanir

Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á:

info@smafiskar.is

Telji einstaklingur að vinnsla persónuupplýsinga brjóti gegn persónuverndarlögum getur hann einnig leitað til Persónuverndar.

13. Breytingar á persónuverndarstefnu

Smáfiskar geta uppfært þessa persónuverndarstefnu eftir því sem þjónustan þróast, mælaborð er tekið í notkun eða lagakröfur breytast.

Ný útgáfa verður birt á vefnum og dagsetning síðustu uppfærslu kemur fram neðst á síðunni.

Útgáfa 1.0 · Gildir frá 9. ágúst 2026 · Síðast uppfært 9. ágúst 2026