Þetta er sýnishorn — raunveruleg handbók er sérsniðin að þínum vinnustað, verkefnum og búnaði.
Handbók Smáfiska · Útgáfa 1
Handbók fyrir tilsjónarmenn
og nema á samning
Hér er farið yfir helstu atriði sem nemi þarf að öðlast færni í ásamt þjálfunaráætlun nemans. Handbókin tengist við gátlista í Gæðahandbókinni og ferilbók nema.
Nafn fyrirtækis
Nafn meistara
Nafn nema
Allt að 48 vikur
Efnisyfirlit
Starfslýsing rafvirkja
Hæfnismarkmið og mat á nema (1–5 kvarði)
Lykilhæfni ferilbókar — verkþáttaskipting
Þjálfunaráætlanir
4a. Kynning á fyrirtæki og ferilbók · 4b. Raflagnir í íbúð (8–12 vikur) · 4c. Nýlagnir í iðnaðarhúsnæði (4–8 vikur) · 4d. Smíði aðaltöflu (2 vikur) · 4e. Mótorar og tíðnibreytarar (1 vika) · 4f. Bilanagreining · 4g. Brunaviðvörunarkerfi (1 vika) · 4h. Öryggis- og aðgangskerfi (2 vikur)
Mat á nema — upphafsstöðu
Fyrsti dagur
Áður en verknám hefst er mikilvægt að greina stöðu nema. Tilsjónarmaður og nemi fylla saman út sjálfsmatsgátlista á kvarðanum 1–5 þar sem 1 er lítil/engin kunnátta og 5 er mikil kunnátta. Ef hæfnisskor er hátt er hægt að aðlaga áætlunina og veita ábyrgð fyrr.
ÖryggismenningPersónuhlífar, áhættumat, fimm öryggisreglur
12345
Stýringar og forritunPLC, tíðnibreytarar, stjörnu/þríhyrningstengingar
12345
Dags: ___/___/______
Dags: ___/___/______
Þjálfunarferli nemans
Yfirlit
Nemi fer í gegnum verkþætti í þessari röð. Öll þjálfun fer fram með tilsjónarmanni — verk eru endurtekin minnst tvisvar, þar sem nemi ber ábyrgð í seinna skiptið.
ÖryggistrúnaðarmaðurHelstu öryggismál í fyrirtækinu, persónuhlífar, neyðaráætlun.
GÁT 1.1
Tilsjónarmaður fer yfir verkfæralistaHvað nemi þarf að eiga, ferð í heildsölu, kynning á verkstæði.
Áhættumat kynntHvernig það er framkvæmt og mikilvægi þess í vinnu rafvirkja.
Tímaskráning og efnisnotkunKynning á Harvest, hvernig skal tilkynna veikindi og skrá frí.
2. Þjálfunaráætlun — Raflagnir í íbúð
8–12 vikur
Markmið: Víðtæk þjálfun í uppsetningu raflagna, með áherslu á öryggisatriði, tæknilega framkvæmd og reglufylgni. Nær yfir kafla 2–8, 10 og 12 í ferilbók.
Áhættumat og undirbúningurDaglega
Dagleg framkvæmd áhættumats áður en vinnu er hafið
Nemi tryggir efni til staðar, rétt magn
Lesið í teikningar, samskipti við tengilið verktaka
Lögn í steypta plötu og innveggi2 vikur
Röralagnir í plötu og vegg — festa vel, beygjur góðar
Uppsetning á keilum, mælt fyrir og gengið frá
Barkar settir í veggi, mikilvægi á góðum festingum
Uppsetning dósa — frágangur, festingar, láréttar
Ídráttur víra og netstrengja1 vika
Val á vírum eftir straumþörf og lengd lagna, rýna teikningar
Draga víra og kapla í rör, ganga frá fyrir málun
Uppsetning og tenging í töflu2 dagar
Þjálfun í uppsetningu og tengingum í töflu — eftir GÁT 2.1
Tengingar á smáspennu, patchpanel og tengli inn í hólfi
Rofa, tengla og ljós1 vika
Uppsetning rofa og tengla samkvæmt öryggiskröfum
Frágangur smáspennutengla
Frágangur fyrir úttekt — loka öllum dósum, prófa tengla
Lokaprófanir og úttekt1 dagur
Framkvæmd lokaprófana — mælingar, úttektir
Skýrslur og gagnaöflun fyrir úttektarmælingar
Dagleg skráningAllan verktíma
Dagleg myndataka og skráning á framvindu
Fylla út GÁT 2.2.1 daglega
Fylla út tímaskrá í tímaskráningarkerfi
3. Þjálfunaráætlun — Mótorar, skilrofar og tíðnibreytarar
1 vika
Markmið: Framkvæma öruggar tengingar á mótorum — áhættumat, Dahlander, snúningsáttaskipti og tíðnibreytarar. LOTO-kerfið (Læsa–Merkja–Prófa) er undirstaðan.
Kynning á mótorum: Dahlander, samfasa, stjörnu/þríhyrningstengingar
Uppsetning: Leggja kapla, tengja við mótora, áhersla á öruggar tengingar
Forritun: Tenging við PLC og tíðnibreyta, stilling
Mælingar: Einangrunar- og viðnámsmælingar (AVO og Megger)
4. Bilanagreining og viðgerð
Þegar bilun kemur upp
Þessi verkþáttur gerist þegar eitthvað bilar. Ef ekkert slíkt verkefni er fyrir hendi þarf að búa til verkefni sem tekur á þáttum GÁT 2.3. Tekur á ferilbókarþáttum 2, 3 og 12.
Verkþættir
Öryggisfræðsla: Áhættumat, tryggja spennu-leysi á bilaðri búnaði