Við mætum inn í vinnsluna sem óháðir sérfræðingar til að greina núverandi flæði og skoða hvar má fínstilla ferla, bæta forritun og samstilla kerfi, án þess að lofa fyrirfram ákveðnum prósentum.
„Algengasta áskorunin í sérsmíðuðum línum er að ætlast til þess að einn róbot leysi of mörg verkefni í einu. Með því að einfalda ferlið, fínstilla hreyfingar eða rýmka um staflanapláss má oft liðka verulega fyrir flæðinu án þess að fjárfesta í nýjum búnaði.“
Við mætum inn á gólfið með yfir 10 ára reynslu úr sjávarútvegi. Við lofum engum töfratölum fyrirfram, heldur vinnum út frá staðreyndum vinnslunnar.
Við brúum bilið á milli flókins sjálfvirknibúnaðar og rekstrarins á gólfinu með hlutlausri og praktískri tækniþekkingu.
Við skoðum hringrásartíma (cycle times), kortleggjum hreyfimynstur þjarka og staðsetjum hvar helstu flöskuhálsar myndast í keyrslu.
Stundum þarf að liðka til með því að fjölga griptækjum eða rýmka staflanaplássin, svo róbotinn eyði ekki dýrmætum tíma í bið eða flóknar aukahreyfingar.
Ef óskað er eftir því, bjóðum við upp á að fara beint í stýrikóða eða endurforrita þjarka til þess að fínstilla og samstilla tímasetningar á milli línunnar og endabúnaðarins.
Í stað þess að innanhússmenn eyði tíma í flóknar tækniræður við erlenda eða innlenda framleiðendur búnaðarins, getum við tekið að okkur samskiptin og rætt milliliðalaust við þá um bestun og breytingar.
Vinnulag okkar tryggir að þú hefur fulla stjórn á framvindunni og færð hlutlæg gögn til að byggja ákvarðanir á.
Við mætum inn í vinnsluna, fylgjumst með líkamlegu flæði og skoðum hvernig búnaðurinn hagar sér í raunverulegri keyrslu.
Við skrifum yfirvegaða úttektarskýrslu með ábendingum um hvað mætti betur fara og hvernig við sjáum lausnirnar fyrir okkur.
Þú tekur ákvörðun um næstu skref. Við getum annað hvort rætt beint við þína tæknibirgja eða séð um breytingar á rafkerfateikningum og þjarkaforritun innanhúss.
Við tryggjum að gerðar breytingar spili rétt saman við önnur kerfi í línunni og vinnslan gangi snurðulaust fyrir sig.
Smáfiskar veita ráðgjöf, greina kerfi, teikna rafkerfi og forrita þjarka. Við smíðum ekki færibönd eða breytum stálvirkjum sjálfir — ef slíkra breytinga er þörf, eru þær hannaðar og framkvæmdar í nánu samstarfi við hæf stálsmíðafyrirtæki sem þú treystir eða við höfum sambönd við.
Fáðu hlutlausa sýn á endabúnaðinn þinn til að sjá hvort hægt sé að liðka fyrir flæðinu með fínstillingum á núverandi kerfi.