Fer rafmagnið rétta leið?

Heildaryfirferð á rafkerfi gripahúsa: rafgæði, jarðbindingar, spennujöfnun og snertifletir gripa.

Við hringjum í þig Skildu eftir símanúmer, fyrsta samtalið er ókeypis og án skuldbindingar.
Einkennin

Kannastu við eitthvað af þessu?

Eru kýrnar órólegar í mjaltabás?
Drekka kýrnar illa eða forðast ákveðin drykkjarker?
Bila mótorar án skýringa?
Sérðu tæringu á tækjum, lögnum eða innréttingum?

Svona einkenni geta átt sér margar skýringar. Í úttektinni leitum við skipulega að þeim sem tengjast rafmagni.

Fyrsta heimsóknin

Svona fer fyrsta úttektin fram

Fyrsta úttekt er sjálfstæð þjónusta á föstu verði fyrir umsamið umfang. Engin skuldbinding um framhald.

1

Við hringjum og förum yfir stöðuna

Þú lýsir húsinu og því sem þú hefur tekið eftir og við segjum þér frá þjónustunni okkar og hvað við gerum. Í leiðinni söfnum við því sem þarf fyrir verðtilboð: fjölda mælipunkta, teikningar af húsinu og tengiliði.

2

Jarðbindingar og snertistaðir gripa

Við skoðum og merkjum upp allar jarðbindingar, tökum mælingar í samráði við þig og mælum helstu snertistaði gripa.

3

Yfirferð á rafbúnaði hússins

Rafbúnaður hússins er merktur upp og skrásettur í kerfið okkar. Mælt það sem við á, jarðtengingar og tengibox skoðuð og mótorar mældir.

4

Skýrsla með myndum og næstu skref

Þú færð niðurstöðurnar settar fram á mannamáli: hvað er í lagi, hvað þarf að laga og í hvaða röð. Viljir þú framhald færðu fast tilboð í árlegan þjónustusamning.

5

Heildarumsjón · þjónustuleið

Viljir þú láta okkur fylgja úrbótunum eftir tölum við beint við rafverktakann þinn um framhaldið. Þú færð tölvupóst með áætluðu verði viðgerða til samþykktar, og eftir samþykki annan póst um hvenær rafverktakinn er væntanlegur. Þú þarft ekki að elta neinn.

Við erum óháðir ráðgjafar og bjóðum upp á heildarskoðun á rafkerfum gripahúsa.

Smáfiskar eru ekki rafverktakar og selja hvorki búnað né viðgerðir.

Fast verð fyrir umsamið umfang, ekkert kemur á óvart
Allt merkt og skráð í kerfi sem fylgir búinu milli ára
Mælingar á staðnum, um allt land
15% afsláttur af fyrstu úttekt ef þú velur þjónustusamning í kjölfarið

Við hringjum í þig

Skildu eftir nafn og símanúmer. Við hringjum, förum yfir stöðuna og þú ákveður svo framhaldið. Ekkert skuldbindandi.

Við hringjum á virkum dögum. Símanúmerið og upplýsingarnar fara ekki lengra.

Takk fyrir!

Við hringjum í þig á næstu virkum dögum.

Vista okkur í tengiliði

Þá sérðu „Smáfiskar - Ráðgjöf" á skjánum þegar við hringjum.

Viltu lesa meira um úttektina og þjónustusamninginn? Sjá alla þjónustuna fyrir gripahús